sígild og samtímatónlist, tónlist

Sígildir sunnudagar: Andrew J. Yang píanóleikari
Verð
4.000 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 23. mars - 16:00
Salur
Norðurljós
Undrabarn, sem nær að fanga tilfinningaskalann frá hinum dýpsta kjarna til tilkomumikilla flugeldasýninga – The San Francisco Examiner
Hæfileikaríkur og einlægur píanóleikari - sannur listamaður – Ruth Slenczynska, lifandi goðsögn og fyrrum nemandi Rachmaninoff
Andrew J. Yang er fæddur og uppalinn í Kaliforníu og útskrifaðist með B.A. í hagfræði og B.M. í píanóleik frá Northwestern háskólanum í Illinois árið 2015 og mastersgráðu í píanóleik frá Mannes tónlistarskólanum í New York árið 2017 og hlaut hann Steinway&Sons verðlaunin, sem veitt eru framúrskarandi útskriftarnema. Meðal kennara hans má nefna hinn virta William Wellborn, Antoinette Perry, Dang Thai Son, og Ruth Slenczynska. Hann fluttist til Patreksfjarðar fyrir fjórum árum og hefur síðan þá verið áberandi í íslensku tónlistarlífi og vakið athygli sem einn af áhugaverðari píanóleikurum landsins. Andrew hefur komið fram á tónleikum víða um heim m.a. í Carnegie Hall í New York, Auditorium Marcel Landowski í París, Musiikkitalo í Helsinki, Menningarsetri gyðinga í Kraká, Mozarthaus í Vínarborg, Hoheikan í Sapporo Japan, og tónleikasölum í Llanes og Ribadesella á Spáni. Hann hefur hlotið verðlaun og viðurkenningar í fjölmörgum alþjóðlegum píanókeppnum, m.a. hlaut hann fyrstu verðlaun í Alþjóðlegu FLAME píanókeppninni í París árið 2019 en af öðrum píanókeppnum þar sem hann hefur unnið til verðlauna má nefna Euregio Piano Award keppnina í Þýskalandi, Metropolitan keppnina í New York, Heida Hermanns keppnina í Connecticut, Thaviu-Isaac í Chicago, Franz Liszt keppnina í Los Angeles. Andrew er stofnandi og listrænn stjórnandi Alþjóðlegu píanóhátíðar Vestfjarða og hlaut sú hátíð hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar árið 2023. Árið 2018 veitti forseti Finnlands honum heiðursverðlaunin Hvítu rósina, fyrir framúrskarandi tónlistarflutning. Andrew J. Yang er fyrrverandi keppnismaður í íþróttum eins og badminton, körfubolta og boxi. Hann býr núna á höfuðborgarsvæðinu og kennir við Tónskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins.
"Leikur hans var öruggur og nákvæmur, fullur af tilfinningum og hápunktarnir í tónlistinni voru magnaðir. Smágerð blæbrigði voru fallega útfærð, áslátturinn var fágaður, allt að því draumkenndur; akkúrat eins og hann átti að vera." - Jónas Sen, Fréttablaðið Frekari upplýsingar má finna á www.andrewyangpiano.com.
Efnisskrá:
Sergei Rachmaninoff: Sonata No. 2 in B-flat minor, op. 36
Domenico Scarlatti: Sonata in F minor, K. 239, Sonata in F minor, K. 466
Johannes Brahms: Intermezzo in E-flat Major, op. 117 no. 1, Fantasie in G minor, op. 116 no. 3
Franz Liszt: Sarabande and Chaconne (from Handel’s Almira), S. 181
Nemum og eldri borgurum býðst að kaupa aðgöngumiðann á kr. 3200 í miðasölu Hörpu.
Viðburðahaldari
Andrew J. Yang
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.000 kr.
Dagskrá
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.

Hápunktar í Hörpu