klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Prokofíev og Tsjaj­kovskíj - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.900 - 9.800 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 27. mars - 19:30

Salur

Eldborg

David Danzmayr
hljómsveitarstjóri

Claire Huangci
einleikari

Anna Clyne
This Midnight Hour

Sergei Prokofíev
Píanókonsert nr. 3

Pjotr Tsjajkovskíj
Sinfónía nr. 6, „Pathétique“

Það tók rússneska tónskáldið Sergei Prokofíev átta ár að ljúka við þriðja píanókonsert sinn, en tónskáldið frumflutti hann sjálfur í Chicago haustið 1921, enda mikill píanósnillingur. Ári síðar spilaði hann verkið undir stjórn landa síns Serge Koussevitzkyí í París og hefur það síðan verið álitið eitt af helstu píanóverkum 20. aldarinnar. Það er kínverskbandaríski píanóleikarinn Claire Huangci sem flytur okkur píanókonsertinn en hún kemur hér fram í annað skiptið með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikar hennar árið 2023 þóttu ótrúlega vel heppnaðir og sagði gagnrýnandi Fréttablaðsins túlkun hennar á píanókonsert Ravels ferska, safaríka, spennuþrungna og áleitna.

Sjötta sinfónía rússneska tónskáldsins Pjotr Tsjajkovskíjs, einnig þekkt undir nafninu Pathétique, var hans síðasta tónverk en Tsjaíjkovskíj lést aðeins níu dögum eftir að hann stjórnaði frumflutningi verksins í Sankti Pétursborg haustið 1893. „Ég hef gefið alla sál mína í þessa sinfóníu,“ skrifaði tónskáldið um sinfóníuna, en hann taldi hana sitt besta verk. Verkið er ástríðuþrungið og tregafullt en í stað þess að átökum þess ljúki í sigurreifum fögnuði eins og títt var um sinfóníur nítjándu aldar lýkur því á einkar frumlegan og áhrifamikinn hátt; í hægum, djúpum harmi.

This Midnight Hour eftir breska tónskáldið Önnu Clyne, verður Íslandsfrumflutt á þessum tónleikum. Verkið er innblásið af ljóðunum La Musica eftir Juan Ramón Jimi og Harmonie du soir eftir Charles Baudelaire. Clyne segir um verkið: „Þó það innihaldi ekki neina ákveðna frásögn, er það von mín að það kalli fram sjónrænt ferðalag hjá hlustandanum.“


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

8.400 kr.

B

6.500 kr.

C

4.800 kr.

D

2.900 kr.

X

9.800 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.