jazz og blús, múlinn, tónlist
Meraki tríó - Múlinn jazzklúbbur
Verð
4.500 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 4. desember - 20:00
Salur
Björtuloft
Meraki tríó
Flytjendur
Rósa Guðrún
Sveinsdóttir, söngur, flauta og saxófónn
Þórdís Gerður
Jónsdóttir, selló
Sara Mjöll Magnúsdóttir,
píanó
Um tónleikana
Meraki tríó er skipað þeim Rósu Guðrúnu
Sveinsdóttur sem syngur og leikur á flautu og baritón-saxófón, Söru Mjöll
Magnúsdóttur á píanó og Þórdísi Gerði Jónsdóttur á selló. Þær spila eigin
tónsmíðar sem teljast til nokkuð hefðbundins jazz en með óvenjulegri
hljóðfæraskipan auk frumlegra og leikglaðra útsetninga er lögunum ljáður
ferskur blær. Selló, baritón saxófónn og píanó skiptast á hlutverkum laglínu,
undirspils og bassa og búa þannig til margslunginn hljóðheim. Þá hefur Meraki
tríó verið óhrætt við að útsetja lög eftir aðra listamenn á nýstárlegan máta. Í
september 2024 gaf tríóið út sína fyrstu hljómplötu, titlaða "Meraki
tríó" sem inniheldur sex frumsamin lög. Meðlimir tríósins hafa bakgrunn úr
ólíkum tónlistarstílum, allt frá barokktónlist og klassík yfir í popp og blús,
og nýta fjölbreyttan bakgrunn og sameiginlegan áhuga á jazzi til að búa til
tónlist sem á sama tíma er vinaleg, hjartnæm og svöl. Á tónleikunum munu
þær spila efni af nýútgefinni plötu ásamt nýju efni og útsetningum á öðru
efni.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.500 kr.
Dagskrá
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.
Hápunktar í Hörpu