klassík, rokk og popp, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Páll Óskar og Sinfó

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

3.920 - 14.900 kr

Næsti viðburður

föstudagur 8. nóvember - 20:00

Salur

Eldborg

Páll Óskar og Sinfó

Anthony Weeden - hljómsveitarstjóri
Páll Óskar Hjálmtýsson - einsöngvari

Tónleikar Páls Óskars og Sinfó í ágúst slógu svo sannarlega í gegn. Uppselt var á tónleikna og vegna fjölda áskorana hefur verið  ákveðið að endurtaka leikinn í nóvember.

Páll Óskar Hjálmtýsson hefur um langt árabil verið einn af eftirlætistónlistarmönnum þjóðarinnar. Strax á barnsaldri söng hann sig inn í hjörtu landsmanna og hefur síðan sent frá sér ótrúlegan fjölda slagara, tekið þátt í Eurovision, fyllt ófá dansiböll, selt plötur í bílförmum og auðgað tónlistarlífið svo um munar með gleði og glæsileika. Aðdáendur Páls Óskars spanna allt frá leikskólabörnum til eldri borgara, enda geta fæstir stillt sig um að dilla sér þegar hann hefur upp raust sína — og flest kunnum við textann við að minnsta kosti eitt eða tvö lög.

Á  tónleikunum syngur Páll Óskar mörg af vinsælustu lögum sínum og hljóma þau hér í glæsilegum útsetningum fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit. Þannig fá jafnt kraftmiklar ballöður sem og ómótstæðilegir diskóslagarar byr undir báða vængi með aðstoð strengja, blásara og slagverks, til viðbótar við hefðbundna rytmasveit og bakraddir. Á lagalistanum eru smellir á borð við Allt fyrir ástina, La Dolce Vita, Þú komst við hjartað í mér, International, Gordjöss, Ég er eins og ég er, og fjölmörg önnur.

Nú er einstakt tækifæri til að upplifa glamúrinn og glitrandi gleðina sem fylgir Páli Óskari í öruggum faðmi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klst. með tuttugu mínútna hléi.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

12.900 kr.

B

9.900 kr.

C

6.900 kr.

D

5.900 kr.

X

14.900 kr.

E

4.900 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.