jazz og blús, múlinn, tónlist

Iris Kramer Quartet - Múlinn jazz­klúbbur

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.500 kr

Næsti viðburður

miðvikudagur 30. október - 20:00

Salur

Björtuloft

Iris Kramer Quartet

Flytjendur
Iris Kramer, trompet, flugelhorn, söngur
Hlín Pétursdóttir Behrens, söngur
Jonas Oppermann, píanó
Henriette Thorunn, kontrabassi, rafbassi
Jan Hauf, slagverk

Um tónleikana
Iris Kramer, trompetleikari hefur komið víða við á sínum tónlistarferli. Hún og stofnaði meðal annars fyrsta bigband Þýskalands eingöngu skipað konum og hefur starfað sem tónlistarkennari og hljóðfæraleikari á Vestfjörðum. Á síðari árum hefur hún sinnt tónsmíðum í auknum mæli og það var á viðburði sem helgaður var konum í jazztónlist sem Henriette Thorunn bassaleikari, nýútskrifuð úr jazzdeild tónlistarháskólans í Frankfurt, kynntist tónlist Irisar. Upp úr því var stofnaður kvartett sem hélt fyrstu tónleikana í Hamborg vorið 2023 og nú eru fjöldi spennandi verkefna framundan. Samstarf reynsluboltans og nýgræðinganna gengur glimrandi vel, tónlistin er létt og leikandi sveifla undir áhrifum frá íslenskri náttúru, veðurfari og menningu. Kvartettinn flytur að mestu frumsamið efni, en einnig íslenska tónlist. Sérstakur gestur á tónleikum er Hlín Pétursdóttir Behrens söngkona og kemur hluti efniskrárinnar úr sameiginlegri smiðju þeirra Írisar og Hlínar.

Tónleikarnir eru styrktir af Þýska sendiráðinu á Íslandi, Íslendingafélaginu í Hamborg og Jazzbüro Baden Württemberg.


Viðburðahaldari

Múlinn Jazzklúbbur

Miðaverð er sem hér segir:

A

4.500 kr.

Björtuloft

Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.

Hápunktar í Hörpu