klassík, kór, tónleikar

Óperu­dagar: Norrænir ævin­týrakórar með YNOC og Jóhanni Krist­ins­syni

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

3.900 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 27. október - 15:15

Salur

Norðurljós

Norrænir ævintýrakórar með YNOC og Jóhanni Kristinssyni

Norræn óperutónlist hljómar sjaldan á tónleikum og því er hér um að ræða einstakt tækifæri til að heyra kórperlur úr norrænum óperum á borð við Maskerade (Nielsen), Snöfrid (Stenhammar), Singoalla (de Frumerie), Ragnheiði (Gunnar Þórðarson) og Þrymskviðu (Jón Ásgeirsson). Þá verður einnig flutt áhugavert kórverk eftir Kaiju Saariaho. Einsöngvari tónleikanna er Jóhann Kristinsson, hinn sænski Andreas Hansson stjórnar kórnum og Olivera Marinkovic leikur á píanó.

Young Nordic Opera Choir er skipaður ungum atvinnusöngvurum og langt komnum söngnemendum á aldrinum 18-35 ára frá öllum Norðurlöndunum. Kórinn þreytti frumraun sína á Óperuhátíðinni í Herning í Danmörku haustið 2023 en norræna samstarfsverkefnið varð að veruleika með tæplega 80 milljóna króna styrk frá A.P. Møller sjóðinum.

Í haust hefur kórinn komið fram á Nordic Song Festival í Trollhättan í Svíþjóð, Óperuhátíðinni í Herning og menningarhátíð í Mors í Danmörku.

Þátttakendur
Kór ungra norrænna óperusöngvara
Jóhann Kristinsson, söngvari
Andreas Hansson, stjórnandi
Olivera Marinkovic, píanó


Viðburðahaldari

Óperudagar 2024

Miðaverð er sem hér segir:

A

3.900 kr.

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.