klassík, tónlist
Víkingur og Yuja Wang: Tveir flyglar
Verð
5.900 - 16.900 kr
Tímabil
20. október - 21. október
Salur
Eldborg
Píanóleikararnir Víkingur Heiðar Ólafsson og Yuja Wang: Tveir flyglar
Píanóleikararnir Víkingur Heiðar Ólafsson og Yuja Wang eru bæði meðal skærustu stjarnanna í heimi klassískrar tónlistar og hafa þau hvort um sig lag á því að koma áheyrendum sífellt á óvart með listfengi sínu, framsækni í verkefnavali og ótrúlegu virtúósíteti. Þessir stjörnupíanistar sameina nú krafta sína í fyrsta sinn á einstökum tónleikum þar sem þeim halda engin bönd, enda er efnisskráin bæði litrík og kraftmikil og spannar allt frá angurværri rómantík til leiftrandi tónlistarlegra flugeldasýninga. Á meðal verkanna sem Víkingur og Yuja leika eru hrífandi Sinfónískir dansar Sergeijs Rakhmanínovs í útgáfu tónskáldsins sjálfs fyrir tvo flygla, hin tregafulla og ægifagra Fantasía Franz Schuberts fyrir fjórhent píanó og umritanir Thomasar Adès á Ómögulegum etýðum Conlons Nancarrow, auk fjölda spennandi tónsmíða eftir tónskáld á borð við John Adams, Arvo Pärt og Luciano Berio.
Þetta er í fyrsta sinn sem Yuja Wang kemur fram á Íslandi en tónleikarnir í Eldborg eru upphafið á glæsilegri tónleikaferð þeirra Víkings og Yuju um heiminn, en þau heimsækja síðar tónleikahús á borð við Carnegie Hall í New York, Royal Festival Hall í Lundúnum, Fílharmóníusali Berlínar og Parísarborgar og Walt Disney Hall í Los Angeles.
Efnisskrá
BERIO "Wasserklavier" úr Sex aukalög fyrir píanó
SCHUBERT Fantasía í f-moll, D. 940
CAGE Experiences No.1
NANCARROW Study No. 6 (umritun Thomas Adès)
JOHN ADAMS Hallelujah Junction
ARVO PÄRT Hymn to a Great City
RACHMANINOFF Sinfónískir dansar
Viðburðahaldari
Víkingur Heiðar Ólafsson
Miðaverð er sem hér segir:
A
15.900 kr.
B
13.900 kr.
C
11.900 kr.
D
8.900 kr.
X
16.900 kr.
E
5.900 kr.
Dagskrá
sunnudagur 20. október - 20:00
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu