10. október 2022
Styrkir til tónleikahalds í Hörpu 2023
Stjórn Styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu árið 2023. Umsóknarfrestur er til 7. nóvember 2022.
Sjóðnum er ætlað að stuðla að eflingu íslensks tónlistarlífs og að styðja tónlistarfólk til að koma fram í Hörpu.
Styrktarsjóður Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns var stofnaður fyrir það fé sem safnað var um árabil til byggingar tónlistarhúss. Núverandi styrktaraðilar í sjóðnum eru nokkur hundruð og kusu flestir þeir, sem styrktu Samtök um tónlistarhús áður, að halda áfram að styrkja sjóðinn eftir að honum var breytt í styrktarsjóð sem úthlutar styrkjum árlega til tónleikahalds í Hörpu.
Umsækjendur geta verið m.a. einstaklingar, tónlistarhópar, tónlistarhátíðir, hljómsveitir og félagasamtök.
Ítarlegri úthlutunarreglur og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu SUT.
Fréttir
6. nóvember 2024
Verðlaunahafar Norðurlandaráðs heimsóttu Hörpu
Svanhildur Konráðsdóttir tók á móti hópi verðlaunahafa Norðurlandaráðs á dögunum.
22. október 2024
Styrkir til tónleikahalds í Hörpu
Umsóknir til tónleikhalds árið 2025
18. október 2024
Harpa leitar að mannauðs- og gæðastjóra
Ef þú hefur brennandi áhuga á að leiða mannauðs- og gæðaverkefnin í Hörpu - viljum við endilega heyra frá þér.