12. maí 2021
World Geothermal Congress
Stærsta ráðstefna um jarðvarma í heiminum
World Geothermal Congress (WGC) er stærsta ráðstefna um jarðvarma í heiminum og fer fram á fimm ára fresti víðs vegar um heiminn. Upphaflega átti ráðstefnan að fara fram á Íslandi á síðasta ári en óhefðbundnir tímar kölluðu á nýja nálgun.
Því var ákveðið að hefja viðburðinn í netheimum núna á vordögum með fimm fundardögum, í fjórum lotum, frá apríl til júlí. Í dag hefst seinni fundarlotan sem stendur yfir í þrjá daga. Á þessum dögum munu 162 klst. af efni verða streymt úr Hörpu til yfir 5000 þátttakenda víðs vegar um heiminn.
Ráðstefnan sjálf verður haldin í Hörpu í október næstkomandi þar sem fræðsla, viðburðir og kynningar á alþjóðlegum verkefnum í jarðvarma fer fram. Markmið WGC er að leiða saman helstu sérfræðinga, vísindamenn, stjórnvöld og aðra hagaðila til að ræða nýtingu auðlinda á sjálfbæran og vistvænan máta.
Fréttir
4. desember 2024
Opnunartími í Hörpu yfir hátíðirnar
Kynntu þér opnunartímana og dagskrána í Hörpu yfir hátíðirnar
6. nóvember 2024
Verðlaunahafar Norðurlandaráðs heimsóttu Hörpu
Svanhildur Konráðsdóttir tók á móti hópi verðlaunahafa Norðurlandaráðs á dögunum.
22. október 2024
Styrkir til tónleikahalds í Hörpu
Umsóknir til tónleikhalds árið 2025