tónlist, upprásin

Upprásin - Áslaug Dungal, Osme og rauður

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.000 kr

Næsti viðburður

þriðjudagur 14. janúar - 20:00

Salur

Kaldalón

Á þessum tónleikum koma fram Áslaug Dungal, Osme og rauður

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir nýrri tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur. Tónleikaröðin kallast Upprásin og fer fram í Kaldalóni eitt þriðjudagskvöld í mánuði veturinn 2024-2025. Hún fer nú fram annað árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.

Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.

Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

  • Áslaug Dungal

Áslaug Dungal er 24 ára gömul tónlistarkona sem hefur verið að koma fram með eigin tónlist undanfarin 2 ár. Hún spilar sjálf á rafmagnsgítar og syngur en með henni spila Jón G. Breiðfjörð á trommur og Borgþór Jónsson á bassa. Tónlistin er í shoegaze stíl og hún vinnur mikið með ambient hljóðheim.

  • Osme

Hljómsveitin Osme spilar hugleiðsluþungarokk og samanstendur af reynsluboltum úr íslensku hljómsveitasenunni, en meðlimir hafa verið í böndum eins og Singapore Sling og Skátum. Osme leggja mikið upp úr sviðsframkomu og tilfinningu í sinni framsetningu, en tónlistin einkennist af ómþýðri, dáleiðandi dróntónlist með þungamálms-undirtóni. Sveitin leitast eftir því að ná fram leiðsluástandi sem þverar tíma og rými, og hvetja áheyrendur til umhugsunar um mikilvægi djúprar hlustunar í daglegu lífi, bæði við sjálfið og hvort annað.

  • rauður

rauður er sviðsnafn tónlistarkonunnar Auðar Viðarsdóttur sem hóf sólóferil í Malmö árið 2016 eftir að hafa verið í hljómsveitinni Nóru. Tónlist rauðar er hægt að lýsa sem rafrænu landslagi með hljóðgervlum, sömplum og óhefðbundnum töktum. Söngurinn er tregafullur og svífur yfir vötnum, ólgusjó, yfir heimsenda eða úti í geimi. Rauður gaf út plötuna “Semilunar” við góðar undirtektir árið 2019, en hún mun taka lög af plötunni í bland við ný á Upprásinni.



Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

A

2.000 kr.

Hápunktar í Hörpu