aðventa, jól, jólatónleikar, rokk og popp, tónlist

Þorláks­messu­tón­leikar Bubba 2024

Verð

5.990 - 13.990 kr

Næsti viðburður

mánudagur 23. desember - 22:00

Salur

Eldborg

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens

er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tón­leik­arn­ir eru merki­leg­ir fyr­ir þær sak­ir að þetta verður í 40. sinn sem Bubbi stend­ur fyr­ir Þorláksmessutónleikum. Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 39 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Þorláksmessutónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum á eftirfarandi dögum:
5. desember - Hotel Selfoss
7. desember - Hljómahöll Reykjanesbæ
11. desember - Lindakirkja Kópavogi
13. desember - Hof Akureyri
19. desember - Bíóhöllin Akranesi
23. desember - Eldborg Reykjavík

Hlökkum til að sjá ykkur.


Viðburðahaldari

Bubbi Morthens

Miðaverð er sem hér segir:

A

12.990 kr.

B

10.990 kr.

C

9.990 kr.

D

7.990 kr.

X

13.990 kr.

E

5.990 kr.

Dagskrá

mánudagur 23. desember - 22:00

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.