klassík, tónlist
SPEGLAR - Tríó Esja
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Verð
2.500 - 4.500 kr
Næsti viðburður
föstudagur 20. desember - 20:00
Salur
Kaldalón
SPEGLAR - Tríó Esja
Guðrún Brjánsdóttir (sópran og ljóðskáld), Herdís Ágústa Linnet (píanóleikari) og Kristín Ýr Jónsdóttir (flautuleikari) í Tríó Esju koma hér saman og flytja franska tónlist eftir brautryðjendurna Maurice Ravel og Claude Debussy. Tónlistin sem flutt verður á það flest öll sameiginlegt að hafa sótt innblástur úr franskri ljóðlist. Tríóið hefur áður flutt franska tónlist í Dómkirkjunni við góðar undirtektir.Frumsamin ljóð Guðrúnar fléttast við píanóleik í verkinu Miroirs (Speglar) eftir Ravel þar sem tónlistin speglar sig í náttúrinni og listformin mætast. Frumflutningur verður á verki eftir sænska tónskáldið Zacharias Wolfe sem samið hefur píanóverk fyrir Herdísi. Verk eftir Debussy að þessu sinni eru: Six épigraphes antiques, í útsetningu fyrir flautu og píanó, og Air de Lia úr L'enfant prodigue, aría fyrir sópran. Að lokum heyrum við tríóið spila saman La Flute Enchantée úr Shéhérazade, eftir Maurice Ravel.
Verið hjartanlega velkomin á tónleika þar sem tónlistin mætir ljóðlistinni, á notalegu föstudagskvöldi í vetrarmyrkri Kaldalóns í Hörpu, föstudaginn 20. desember kl. 20:00.
Verkefnið er styrkt af tónlistarsjóði Ýlis - tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk
Viðburðahaldari
Tríó Esja
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.500 kr.
Dagskrá
Hápunktar í Hörpu