jazz og blús, múlinn, tónlist
Tango For One / Bossanova / Tango / Bolero - Múlinn jazzklúbbur
Verð
4.500 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 18. september - 20:00
Salur
Björtuloft
Flytjendur
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Haraldur Ægir Guðmundsson, bassi
Matthías MD Hemstock, trommur
Jón Óskar Jónsson, slagverk
Um tónleikana
Á opnunartónleikum Múlans þetta haustið kemur
fram bassaleikarinn Haraldur Ægir Guðmundsson ásamt hljómsveit sinni og leikur
efni af hljómplötunni “Tango for One” sem kom út í desember 2023.
Tríóið sem lék á disknum hefur komið víða fram við góðar undirtektir. Lögin er
öll samin af Haraldi Ægi og er platan undir sterkum áhrifum frá Suður-amerískri
tónlist. Ásamt Haraldi koma fram Andrés Þór Gunnlaugsson og Matthías Hemstock
og á tónleikunum bætist í hópinn Jón Óskar Jónsson sem leikur á slagverk.
Platan var tekin upp og hljóðblönduð af Ómari Guðjónssyni og hljómjöfnuð af
Ívari "Bongó" Ragnarssyni.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.500 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 18. september - 20:00
Björtuloft
Björtuloft eru glæsileg og óvenjuleg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina. Á neðri hæð er fastur bar og útgengi á svalir með útsýni yfir höfnina.
Hápunktar í Hörpu