aðventa, jólatónleikar, tónlist
Borgardætur - jólatónleikar
Verð
9.990 - 11.990 kr
Tímabil
11. desember - 12. desember
Salur
Norðurljós
Borgardætur í Norðurljósum
Allt frá útkomu "Jólaplötunnar", árið 2000, hafa hinar
óviðjafnanlegu Borgardætur, Andrea Gylfa, Ellen Kristjáns og Berglind Björk haldið
jólatónleika í desember við frábærar undirtektir.
Þær koma nú saman á ný eftir nokkurra ára hlé og það verður allt
vitlaust í boðinu.
Að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir í Norðurljósasal Hörpu.
Á efnisskránni verða sem fyrr jólalög í bland við glens, grín og
spuna að hætti dætranna.
Einnig er von á Skáldkonunni góðu að handan.
Óviðjafnanleg skemmtun, einstök blanda af hátíðleika og hlátri
fyrir fullorðna.
Eyþór Gunnarsson útsetjari og píanóleikari er
tónlistarstjóri dætranna að venju.
Með honum spila Magnús Trygvason Eliassen á trommur og Andri
Ólafsson á bassa.
GÓÐA SKEMMTUN!
Viðburðarhaldari: Borgardætur
Viðburðahaldari
Borgardætur
Miðaverð er sem hér segir:
A
11.990 kr.
B
9.990 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 11. desember - 20:00
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.
Hápunktar í Hörpu