börn og fjölskyldan, tónlist

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Sögu­stund með Maxímús

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 26. maí - 11:30

Salur

Kaldalón

Í sögustund með Maxa fáum við að fylgjast með tónlistarævintýrum hinnar ástsælu músar Maxímúsar Músíkúsar. Steinunn Arinbjarnardóttir les söguna Maxímús Músíkús kætist í kór úr hinum vinsæla bókaflokki Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar við tónlistarundirleik og myndasýningu af tjaldi.  

Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða hér vegna takmarkaðs sætafjölda. Opnað er fyrir bókanir fimm dögum fyrir auglýsta sögustund.  

Aðgengi
Viðburðurinn fer fram á íslensku.  
Í salnum eru stæði fyrir hjólastóla á efsta bekk. 
Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari á vegum Hörpu gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

Dagskrá

sunnudagur 26. maí - 11:30