börn og fjölskyldan, ókeypis viðburður, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Opið hús fyrir alla fjöl­skylduna - Opið hús fyrir alla fjöl­skylduna - Afmæl­is­dag­skrá Sinfón­íu­hljóm­sveitar Íslands

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 1. mars - 11:00

Salur

Harpa

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri
Ross Jamie Collins

Í tilefni af 75 ára stórafmæli Sinfóníuhljómsveitar Íslands býður hljómsveitin börnum og fjölskyldum þeirra heim í Hörpu þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir þau yngstu í Flóa.

Á dagskránni verða Barnastundir með Lalla töframanni þar sem hljómsveitin leikur fjölbreytta og skemmtilega tónlist og Lalli töfrar börnin upp úr skónum. Tónlistarævintýrið sívinsæla um Pétur og úlfinn verður flutt síðdegis og það er trúðurinn Barbara besta vinkona Halldóru Geirharðsdóttur sem segir söguna. Ross Jamie Collins heldur um tónsprotann. Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníunni kynna hljóðfærin sín fyrir forvitnum gestum og Maxímús Músíkús verður að sjálfsögðu á vappi. Þá verður opið í Hljóðhimnum, upplifunarrými fyrir börnin í Hörpu.

Barnastundirnar fara fram kl. 11:30-12:00 og 12:45-13:15
Ævintýrið um Pétur og úlfinn verður flutt kl. 15:00-15:30

Húsið opnar kl. 11:00 fyrir gesti og gangandi og allir eru hjartanlega velkomnir að fagna afmælinu með Sinfó.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

Dagskrá

laugardagur 1. mars - 11:00