tónlist

Haukur Mort­hens 100 ára

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

7.990 - 14.990 kr

Næsti viðburður

laugardagur 24. maí - 16:00

Salur

Eldborg

Í maí á þessu ári voru liðin 100 ár frá fæðingu Hauks Morthens eins dáðasta söngvara þjóðariannar. 

Af því tilefni voru haldnir glæsilegir tónleikar í Eldborgarsal Hörpu honum til heiðurs.
Tónleikarnir þóttu heppnast einstaklega vel og mikil ánægja var með framtakið hjá fjölskyldu Hauks sem og öðrum gestum.

Vegna fjölda áskorana verða tónleikarnir endurteknir næsta vor eða þann 24. maí 2025 kl. 16:00

Fram koma söngvararnir góðu Jógvan Hansen, Bogomil Font, Valdimar Guðmundsson og Unnur Birna Björnsdóttir ásamt hljómsveit undir stjórn Karls Olgeirssonar.  
Sérstakir gestir verða meðlimir Karlakórs Kjalnesinga. 

Allt verður gert til að skapa huggulega stund í Eldborg til að heiðra minningu meistara Hauks Morthens.

Haukur Morthens (17. maí 1924 – 13. október 1992) var margþættur hæfileikamaður sem bar marga hatta. Hann fór ótroðnar slóðir bæði heima og erlendis.
Hann var sá fyrsti sem gerði dægurlagasöng að atvinnu og um leið fyrstur slíkra til að reyna fyrir sér á erlendum vettvangi. Hann var jafnframt lagahöfundur, hljómsveitarstjóri, skrifaði um tónlist í blöð og tímarit, flutti inn erlent tónlistarfólk, hélt tónleika og var með eigið útgáfufyrirtæki um tíma. Haukur var  fagmaður og reglumaður fram í fingurgóma. 

Ferðalag Hauks í gegnum tónlistina hófst þegar hann var aðeins aðeins 11 ára þegar hann kom fyrst fram með drengjakór Reykjavíkur.
19 ára gamall hóf Haukur atvinnuferil sinn með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar og varð fljótt einn frægasti, ástsælasti og áhrifamesti söngvari Íslands.
Hann risti nafn sitt djúpt inn í annál íslenskrar tónlistarsögu, ekki bara sem flytjandi heldur sem frumkvöðull og hugsjónamaður.

Vertu með þegar við minnumst og gleðjumst yfir arfleifð eins ástsælasta dægurlagasöngvara Íslands Hauks Morthens.


Viðburðahaldari

Funk Events

Miðaverð er sem hér segir:

A

12.990 kr.

B

9.990 kr.

C

7.990 kr.

D

7.990 kr.

X

14.990 kr.

E

7.990 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.