aðventa, börn og fjölskyldan, jólatónleikar, klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist
Jólatónleikar Sinfóníunnar
Verð
3.900 - 4.700 kr
Tímabil
14. desember - 15. desember
Salur
Eldborg
Sinfóníuhjómsveit Íslands
Hjörtur Páll Eggertsson
hljómsveitarstjóri
Trúðurinn Barbara
kynnir
Ragnheiður Gröndal
Benedikt Kristjánsson
Matthildur Hafliðadóttir
einsöngvarar
Kolbrún Völkudóttir
einsöngur á táknmáli
Stúlknakór Reykjavíkur
og Kammerkórinn Aurora
Bjöllukórar Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar og
Tónstofu Valgerðar
Dansarar úr
Listdansskóla Íslands
Langspilssveit Flóaskóla
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru tilvaldir
fyrir jólabörn á öllum aldri. Tónleikarnir eru hátíðlegir að
vanda og með dálítið þjóðlegu ívafi að þessu sinni þar sem
íslenskar þjóðvísur mæta sígildum jólalögum og töfrandi
tónlistarævintýrum, uppfullum af jólaanda.
Nýr jólaforleikur prýddur íslenskum og erlendum þjóðlögum
opnar dagskrá tónleikanna og söngvararnir Ragnheiður
Gröndal, Benedikt Kristjánsson og Kolbrún Völkudóttir flytja
fallegar jólaperlur. Kórarnir, ásamt dönsurum, flytja valda
þætti úr Snjókarlinum, töfrandi jólaævintýri um vináttuna,
eftir Howard Blake. Bjöllukórarnir sameina krafta sína í laginu
Hátíð fer að höndum ein og Langspilssveitin strammar sjálft
þjóðarhljóðfærið af miklum þrótti.
Kynnir á tónleikunum er
trúðurinn Barbara, besta vinkona Halldóru Geirharðsdóttur
leikkonu, sem kemur öllum í sannkallað hátíðarskap.
Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.700 kr.
B
3.900 kr.
C
3.900 kr.
D
3.900 kr.
X
4.700 kr.
Dagskrá
laugardagur 14. desember - 14:00
laugardagur 14. desember - 16:00
sunnudagur 15. desember - 14:00
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu