klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist

Inferno - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.900 - 9.800 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 16. janúar - 19:30

Salur

Eldborg

Daníel Bjarnason
hljómsveitarstjóri

Vivi Vassileva
einleikari

Daníel Bjarnason
Inferno, slagverkskonsert

Daníel Bjarnason
A Fragile Hope

Pjotr Tsjajkovskíj
Francesca da Rimini

Daníel Bjarnason hefur átt farsælt samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands í rúman áratug, bæði sem hljómsveitarstjóri og tónskáld. Hann var staðarlistamaður á árunum 2015—2018 og aðalgestastjórnandi árin 2019—2021, en starfar nú með sveitinni sem listamaður í samstarfi. Tónsmíðar Daníels hafa vakið mikla athygli víða um heim og fáum við á þessum tónleikum að hlýða á Íslandsfrumflutning á slagverkskonsertinum Inferno. Konsertinn var pantaður af Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg, þar sem verkið var frumflutt árið 2023. Einleikari kvöldsins er slagverksstjarnan Vivi Vassileva sem hefur sérhæft sig í flutningi samtímatónlistar og kemur fram sem einleikari með helstu hljómsveitum víða um heim.

 Eins og slagverkskonsertinn Inferno, sem vísar beint til vítisloga með nafni sínu, tengist seinni hluti efnisskrárinnar einnig undirdjúpum og undirheimum í ýmsum skilningi. Fyrst eftir hlé hljómar verk Daníels Bjarnasonar, A Fragile Hope, sem frumflutt var af Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg í febrúar 2024. Daníel segir verk sitt sækja innblástur til Íslands, þar sem ótrúlegir kraftar búi undir yfirborðinu, jafnt í eldvirkni landsins sem og í hafinu í kring. Verkið er helgað minningu Jóhanns Jóhannssonar tónskálds sem lést 2018.

Lokaverk tónleikanna er eftir Pjotr Tsjajkovskíj. Francesca da Rimini var ítölsk aðalskona, fædd árið 1283, en samnefnt tónaljóð Tsjajkovskíjs rekur sorgarsögu hennar: Eiginmaður hennar myrti hana eftir að hann komst á snoðir um ástarsamband hennar við bróður hans. Innblásturinn að verkinu fékk Tsjajkovskíj þegar hann las Gleðileikinnguðdómlega eftir Dante Aligheri en þar birtist Francesca sem ein þeirra ólánssömu persóna sem Dante hittir í sjálfum hreinsunareldinum.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

8.400 kr.

B

6.500 kr.

C

4.800 kr.

D

2.900 kr.

X

9.800 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.