klassík, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist
Sinfónían á Myrkum - Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Verð
2.900 - 5.700 kr
Næsti viðburður
föstudagur 24. janúar - 18:00
Salur
Eldborg
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Daníel Bjarnason
hljómsveitarstjóri
Martin Kuuskmann
einleikari
Balaena
Marcos Balter
Orun
Páll Ragnar Pálsson
PLAY - Konsert fyrir Martin Kuuskmann
Árlegir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónlistarhátíðinni Myrkum músíkdögum eru tilhlökkunarefni fyrir alla unnendur íslenskrar og alþjóðlegrar samtímatónlistar. Á tónleikunum, sem eru opnunartónleikar hátíðarinnar í ár, hljóma nýleg og athyglisverð verk frá Íslandi og Brasilíu. Tónleikarnir hefjast á verki Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur, Balaena. Ingibjörg Ýr hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta tónskáld sinnar kynslóðar á Íslandi en hún útskrifaðist úr tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands 2016. Verkið Balaena var frumflutt af Kammersveit Reykjavíkur á Myrkum músíkdögum 2023 og vakti þar mikla athygli en hljómar á þessum tónleikum í nýrri útgáfu fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit.
Marcos Balter er eitt fremsta tónskáld Brasilíu um þessar mundir og sækir verk hans Orun frá 2022 innblástur í trúarlíf og hugleiðsluhefðir Yoruba-þjóðflokksins í Vestur-Afríku. Verkið kallar fram leiðslukennt andrúmsloft og nýtir sér hin fíngerðari blæbrigði hljómsveitarinnar til hins ítrasta. Það var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Nýja-heimsins í Flórída undir stjórn Matthiasar Pintscher haustið 2022 og hlaut fádæma góðar viðtökur.
Tónleikunum lýkur á Íslandsfrumflutningi á fagottkonserti Páls Ragnars Pálssonar, en Páll hefur verið í fremstu röð íslenskra tónskálda um árabil. Það var eistneski fagottvirtúósinn Martin Kuuskmann sem frumflutti verkið með Sinfóníuhljómsveit Eistlands undir stjórn Olari Elts árið 2022. Tengsl Páls Ragnars við Eistland eru djúpstæð, en hann stundaði tónsmíðanám þar og lauk doktorsprófi 2014. Í verkinu sækir Páll efnivið í ævi Kuuskmanns og sameiginlega hrifningu þeirra beggja á náttúru og menningu Eistlands. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir, án hlés.
Hefðbundið tónleikaform verður brotið upp á tónleikunum og verður
hljómsveitin í hringuppstillingu á sviði. Áhorfendur geta setið umhverfis
hljómsveitina – á kórvögnum, til hliðar við svið og í salnum.
*Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir, án hlés.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
5.700 kr.
B
3.500 kr.
C
2.900 kr.
D
2.900 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu